Leiðbeiningar um þrívíddarprentun með GeoGebra
1) Farðu á vefsíðuna geogebra.org og veldu 3D Graphing.
2) Efst í vinstra horninu þarftu að velja aðalvalmyndina (Main Menu) og þá geturðu annað hvort búið til Nýtt skjal (New file) eða Opnað (Open) skjal sem þegar er til staðar.
3) Ef þú býrð til Nýtt skjal (New) þá geturðu smíðað hlut annað hvort með því að nota Grunnverkfærin (geometric constructions) eða með því að nota algebru inntakið (algebraic descriptions).
4) Ef þú velur að Opna (Open) veldu skrá sem þú áttir fyrir og smelltu á Breyta (Edit).
5) Nú er allt að verða tilbúið! Eftir að þú hefur gert breytingar sem þú vilt gera fyrir prentun þarftu að velja Flytja út (Download as) og STL í aðalvalmyndinni til að fá STL skjal með smíðinni þinni.
MIKILVÆGT: Gætið þess að allt sem þú vilt prenta sé sýnilegt í aðalglugganum og að það sem þú vilt ekki prenta út sé annað hvort falið eða búið að eyða því. Dæmi um það sem þarf að fela eru ásar hnitakerfisins.
6) Nú skulum við skoða STL skjalið í þeim þrívíddar-prentunar hugbúnaði sem þér þykir þægilegastur. Þar getur þú gert lokabreytingar ef þörf er á. Nánar um þetta í skjalinu Stillingar með þrívíddar-prentunar hugbúnaði.
Athugið: Þótt hér sé gengið út frá 3D Graphing hluta GeoGebru þá er einnig mögulegt að hlaða niður STL skrá úr öðrum hlutum GeoGebru. Það er þó stundum nokkuð frábrugðið því sem að ofan er lýst. Til dæmis gildir í GeoGebra Classic að aðalvalmyndin er efst í hægra (ekki vinstra) horninu.