Ferill falls lagður að mynd
Lærum að flytja inn mynd
Flytja má myndir inn í GeoGebru með því að nota verkfærið Setja inn mynd.
Ábending: Þetta verkfær má finna í verkfærakistunni næstlengst til hægri þar sem rennistikan sést vanalega efst.
Festum myndina í hnitakerfi
Staðsetning myndarinnar ákvarðast af tveimur punktum.
- Komdu punktunum fyrir eins og þú vilt að myndin birtist í hnitakerfinu, t.d. með hnitin (0,0) og (12,0).
- Veldu annan punktanna og Eiginleika hlutar. Í flipanum Grunneiginleikar skaltu haka við Festa hlut.
- Veldu hinn punktinn og festu hann líka.
Myndin sett í bakgrunn og ógagnsæi hennar aukið
Veldu Eiginleika hlutar og í flipanum
- Grunneiginleikar skaltu haka við Mynd í bakgrunni til að aðrir hlutir feli sig aldrei bak við myndina.
- Litur skaltu breyta ógagnsæis-hlutfallinu í 25%
Prófaðu að flytja inn mynd, festa punktana sem staðsetja hana og setja hana í bakgrunn:
Finndu mynd með fleygbogaferli
Þú getur notað myndaleit leitarvélar og fundið t.d. mynd af gosbrunni, vatnshana, brú, byggingu eða skotferli bolta.
- Flyttu myndina inn eins og lýst er hér að ofan, festu hana og settu í bakgrunn
- Notaðu punkt-verkfærið til að merkja inn þrjá punkta sem eru á fleygbogaferlinum.
- Skráðu í inntaksreitinn Margliða() og settu nöfn punktanna þriggja inn í fallið áður en þú slærð á vendihnappinn (Enter) á lyklaborðinu.
- Þú getur fært punktana til þar til ferillinn fellur vel að myndinni.
- Ef þú vilt birta jöfnu fleygbogans í teikniglugganum þá geturðu notað Textaverkfærið og sett inn texta með því að velja fallið úr fellivalmyndinni Hlutir.
- Til að skoða fallið nánar má til dæmis nota Fallaskoðara-verkfærið sem finna má í verkfærakistunni með horninu efst.